- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Í aðdraganda jóla er gott að geta dregið sig út úr jólastressinu og átt notalega fjölskyldustund með smáfólkinu. Í Duus Safnahúsum hafa jólasveinarnir og þeirra nánasta fjölskylda falið sig vítt og breytt í Bryggjuhúsinu. Það er því þörf á hjálp barnanna við að finna þá í tæka tíð fyrir jólin svo þeir komist nú með gjafirnar í skóinn. Til að finna þá þarf að leysa þrautir í skemmtilegum fjölskylduratleik.
Í Stofunni, einum sala Duus Safnahúsa, geta börnin skrifað og skreytt óskalista til jólasveinanna. Skessan í hellinum, sem er frænka jólasveinanna, tekur á móti þeim í póstkassann sinn og hefur lofað að færa jólasveinunum óskalistana tímanlega. Hún er komin í mikið jólaskap og ætlar að skreyta hellinn sinn í byrjun desember og hlakkar mikið til að fá heimsóknir frá kátum krökkum.
Eftir ratleik og gönguferð í Skessuhelli er tilvalið að koma við á Kaffi Duus þar sem börnum, í fylgd fullorðinna, er boðið upp á kakóbolla og piparköku í verðlaun fyrir þátttöku í ratleiknum.
Jóladagskrá fjölskyldunnar hófst laugardaginn 28. nóvember og stendur til 6. janúar.
Börnin á Vesturbergi aðstoðuðu Skessuna við að skreyta hellinn sinn fyrir jólin.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös