Jólagjafahandverksmarkaður í Svarta Pakkhúsinu

Jólagjafahandverksmarkaður verður haldinn í Svarta Pakkhúsinu í Reykjanesbæ laugardaginn 6. nóvember milli klukkan 13 til 17.

Eftir frábærar viðtökur á jólagjafamarkaði okkar fyrir síðustu jól höfum viðákveðið að halda aftur markað en nú með nýju sniði. Í fremri sal höfum við fengið til liðs við okkur kunna listamenn af Suðurnesjunum. Þar má nefna Hafdísi Hill leirgerðarkonu, Margréti Ósk gullsmið, Ástu Karítas með skessupeysur og Ágúst með hnýttar flugur. Allir listamenn í fremri sal verða sjálfir til staðar að kynna sýnar vörur.

Í okkar sívinsæla innri sal verður að venju frábært úrval af handunnum gjafavörum á góðu verði og í tilefni dagsins verðum við með 10% afslátt af öllum vörum í innri sal. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla að koma að skoða fjölbreytt íslenskt handverk og versla jólagjafir.

Þess má geta að þeir sem versla við okkur í nóvember bíðst að skrá sig í lukkupott Svarta Pakkhússins þar sem þrír heppnir vinningshafar verða dregnir út 4. desember og fá þeir glæsilega vinninga. Heitt verður á könnunni og piparkökur í boði hússins.

Við hlökkum til að sjá sem flesta líta við og njóta jólastemningarinnar með okkur.