Jólahús Reykjanesbæjar 2022

Íbúar í Reykjanesbæ eru margir hverjir sannkölluð jólabörn og leggja mikinn metnað í jólaskreytingar. Það er einstaklega gaman að taka rúnt um bæinn og skoða þessar fallegu skreytingar. Þar sem bærinn okkar stækkar stöðugt geta glæsilegar jólaskreytingarnar leynst víða og því fannst okkur tilvalið að smella í laufléttan jólaleik þar sem íbúar gátu komið með tillögur að jólahúsi Reykjanesbæjar. Súlan verkefnastofa setti leikinn á laggirnar og var hann fyrst og fremst hugsaður til skemmtunar og til að vekja athygli á því sem vel er gert hjá íbúum Reykjanesbæjar en Húsasmiðjan styður við bakið á uppátækinu með gjafabréfi til eigenda jólahússins.

Menningar- og atvinnuráð fékk það skemmtilega verkefni að útnefna jólahús Reykjanesbæjar árið 2022 úr tilnefningum sem bárust frá íbúum. Ráðið vill hrósa íbúum fyrir augljósan metnað þegar kemur að jólaskreytingum og þakkar þeim sem sendu inn tilnefningar en þær voru fjölmargar og átti ráðið fullt í fangi með að keyra um bæinn og taka út stórglæsileg jólahús.

Keppnin var ansi hörð og mörg hús sem komu til greina en að þessu sinni er það Heiðarból 19 sem hlýtur nafnbótina jólahús Reykjanesbæjar 2022. Eigendur hússins eru Magnús Ingi Jónsson og Helga Jónína Guðmundsdóttir en þau hljóta viðurkenningu frá Húsasmiðjunni. Jólahúsið að Heiðarbóli 19 er einstaklega fallega skreytt með marglitum seríum, jólastöfum í hverjum glugga og ef vel er að gáð má sjá jólasveina í gluggunum virða gesti og gangandi fyrir sér. Eigendur jólahússins fengu viðurkenningu í Aðventugarðinum á Þorláksmessu og óskum við þeim hjartanlega til hamingju. Að lokum færum við Húsasmiðjunni bestu þakkir fyrir að taka þátt í verkefninu með okkur.

Birgitta Rún Birgisdóttir afhendir, fyrir hönd menningar- og atvinnuráðs Reykjanesbæjar, eigendum Jólahússins viðurkenningu í Aðventugarðinum.

Heiðarból 19 er fallega skreytt.

Fallegir jólastafir í öllum gluggum og jólasveinar kíkja á mannlífið út um gluggann.