Jólaljósin á vinabæjarjólatrénu í Reykjanesbæ tendruð í fimmtugasta og sjötta sinn

Mynd: Víkurfréttir
Mynd: Víkurfréttir

Það er Leonard Ben Evertsson nemandi úr 6. bekk Akurskóla sem fær þann heiður á sunnudaginn að kveikja ljósin á jólatrénu á Tjarnargötutorgi sem er að venju gjöf frá Kristiansand í Noregi, vinabæ Reykjanesbæjar. Jóhann Friðrik Friðriksson, forseti bæjarstjórnar, veitir trénu viðtöku fyrir hönd íbúa og ávarpar viðstadda.

Jóladýrin í Hálsaskógi og jólasveinar líta við

Það er næsta víst að margir bæjarbúar hafa alist upp við það að vera viðstaddir tendrunina á vinabæjarjólatrénu og það er eins með þetta og aðrar  jólahefðir, að það má alls ekki breyta þeim. Enda verður þetta skemmtileg stund. Blásarasveit frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leikur jólalög við tréð á meðan gesti drífur að og dýrin í Hálsaskógi, sem öll börn í bænum elska, eru nú komin í jólaskap og koma fram sem Jóladýrin í Hálsaskógi og ætla að skemmta börnunum eins og þeim er einum lagið. Þá koma jólasveinar í heimsókn og dansa í kringum tréð.

Boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur til að halda hita á mannskapnum.
Dagskráin hefst kl. 17 og verður lokið kl. 18.