- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Í morgun ákvað starfsfólk Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar að gera smá tilraun og beita geitunum úr landnámsdýragarðinum á steinana á Kampi í innri Njarðvík.
Geiturnar voru mjög sáttar og kjömsuðu á lúpínu, hófblöðku, njóla og túnfíflum. Þetta er ein af þeim vistvænu leiðum sem notaðar eru víða um heim á svæði þar sem gengur ekki að beita sláttuvélum.
Skemmtilegt verkefni sem vakti lukku á meðal vegfarenda og er stefnan að útfæra þetta og þróa frekar.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)