- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Hlutfall fyrstu kaupa af þinglýstum kaupsamningum það sem af er ári er hæst á Suðurnesjum, rétt rúm 32%. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár Íslands um fyrstu kaup. Fylgst hefur verið með upplýsingum um þinglýsingu fyrstu kaupa frá því heimild til lægri stimpilgjalda vegna fyrstu kaupa var veitt 1. júlí 2008.
Í vinnslu Þjóðskrár eru þinglýstir kaupsamningar taldir og afsöl um íbúðarhúsnæði án undangengins kaupsamnings og eignayfirlýsingar. Ekki eru taldar með eignatilfærslur byggðar á erfðum eða öðru slíku, eins og segir í fréttinni. „Rannsókn á því hvort um fyrstu kaup var að ræða fór fram við móttöku skjala til þinglýsingar hjá sýslumönnum.“
Af þeim 615 kaupsamningum sem hafa verið þinglýstir á Suðurnesjum það sem af er ári eru 198 fyrstu kaup. Á eftir Suðurnesjum kemur Austurland með rétt tæp 32%, þá Vestfirðir, síðan Suðurland, Norðurland vestra, Vesturland, Höfuðborgarsvæðið og loks Norðurland vestra. Í gögnunum er ekki að finna skiptingu milli sveitarfélaga innan landssvæða.
Hægt er að skoða fréttina í heild og excelskjal yfir dreifni hér.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös