Kjörskrá og kjörstaðir í Reykjanesbæ vegna Stjórnlagaþings

Skjaldamerki Íslands
Skjaldamerki Íslands

Kjörfundur fyrir íbúa í Innri-Njarðvík, Höfnum og Ásbrú er í Akurskóla.
Kjörfundur fyrir íbúa í Ytri-Njarðvík er í Njarðvíkurskóla
Kjörfundur fyrir íbúa í Keflavík er í Heiðarskóla.

Kjörskrá í Reykjanesbæ vegna kosninga til Stjórnlagaþings sem fram fara 27.nóv. 2010 liggur frammi almenningi til sýnis
á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.

Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl.22:00
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Heiðarskóla sími 420-4515

Yfirkjörstjórn