- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara 29. maí 2010 liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar frá 18. maí fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra eru á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrár skal beint til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Kjörfundur fyrir íbúa í Innri Njarðvík, Höfnum og Ásbrú er í Akurskóla
Kjörfundur fyrir íbúa í Ytri Njarðvík er í Njarðvíkurskóla
Kjörfundur fyrir íbúa í Keflavík er í Heiðarskóla
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstaðir opna kl. 9:00 og loka kl. 22:00.
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Heiðarskóla sími 420 4515.
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)