Könnun varðandi ljósleiðara í Höfnum

Könnun á áformum markaðsaðila varðandi uppbyggingu fjarskiptainnviða vegna fyrirhugaða lagningu ljósleiðarakerfis í Höfnum

Fyrirhuguð er lagning ljósleiðarakerfis í Höfnum í Reykjanesbæ, sem veita á öruggt þráðbundið netsamband til notenda. Gert er ráð fyrir að tengja öll lögheimili í þessum hluta sveitarfélagsins, en einnig mun eigendum frístundahúsa og fyrirtækja á þessu svæði standa til boða að tengjast ljósleiðarakerfinu.

Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu um ljósleiðarakerfið og kerfið verði að öllu leiti sambærilegt ljósleiðara innviðum annars staðar í sveitarfélaginu.

Auglýst er eftir:

A. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingum eða annarri þráðbundinni netþjónustu í dreifbýli Reykjanesbæjar á markaðslegum forsendum.

B. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá opinberum aðilum og reka til framtíðar, komi til þess að enginn svari lið A hér að ofan.

C. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í sveitarfélaginu Reykjanesbæ sem er tilbúinn að leggja þá innviði til við uppbygginguna gegn endurgjaldi, sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt B hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.

 

Áhugasamir skulu senda tilkynningu til Reykjanesbæjar á netfangið gunnar.e.geirsson@reykjanesbaer.is fyrir kl. 12:00 föstudaginn 30. apríl, 2021. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á. Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir senda á sama netfang.

Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Reykjanesbæ né þá sem sýna verkefninu áhuga.

F.h. Reykjanesbæjar
Gunnar Ellert Geirsson
Deildarstjóri Umhverfismála