- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Í tilefni af heilsu- og forvarnarviku í Reykjanesbæ bauð Bókasafn Reykjanesbæjar upp á krakkajóga með Sibbu laugardaginn 10. október síðastliðinn í streymi á Facebook síðu safnsins.
Viðbrögðin fóru fram úr björtustu vonum en tæplega 900 hafa horft á myndbandið síðan á laugardagsmorguninn. Myndbandið verður aðgengilegt fyrir unga sem aldna jógaiðkendur á Facebook síðu Bókasafns Reykjanesbæjar til og með laugardeginum 16. október.
Sigurbjörg Gunnarsdóttir, eða Sibba eins og hún er oftast kölluð er leikskólakennari og jógaleiðbeinandi. Hún kennir jóga í leikskólanum Gimli sem hún starfar á og hefur komið nokkru sinnum og kennt krakkajóga í Bókasafninu, alltaf við frábærar undirtektir.
Starfsfólk Bókasafnsins hvetur alla til að taka frá tíma og liðka aðeins huga og líkama með yngstu kynslóðinni.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)