Krakkakosningar 2021

Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 25. september en börn í Reykjanesbæ ætla að láta skoðanir sínar á barnastarfi safnsins í ljós.

Í tilefni alþingiskosninganna ætlum við í bókasafninu að boða til krakkakosninga sem hefjast 20. september og standa út sjálfan kosningadaginn 25. september.
Krakkarnir fara í kjörklefann okkar og kjósa þar á milli þriggja valmöguleika um hvað þau vilja helst gera og sjá í bókasafninu sínu.

Fullorðnir mega aðeins fylgja barni inn í kjörklefann ef það þarf aðstoð við lestur miðans!