Kynningarfundur um nýja staðsetningu leikskólans Háaleitis

Leikskólinn Háaleiti verður fluttur að Skógarbraut 932 og mun þá fá nýtt nafn. Ljósmynd: Kadeco
Leikskólinn Háaleiti verður fluttur að Skógarbraut 932 og mun þá fá nýtt nafn. Ljósmynd: Kadeco

Kynningarfundur um flutning leikskólans Háaleitis í nýtt húsnæði verður í leikskólanum miðvikudaginn 11.apríl 2018 kl.16:30 -17:30. Fulltrúar frá Reykjanesbæ og Skólum ehf. munu kynna nýja staðsetningu og svara spurningum.  Einnig verður nýtt nafn leikskólans tilkynnt á fundinum. Foreldrar barna í leikskólanum og íbúar á Ásbrú eru hvattir til að mæta.