Kynningarfundur umboðsmanns skuldara í Virkjun

Lógó Umboðsmanns skuldara
Lógó Umboðsmanns skuldara

Á næstunni mun Umboðsmaður skuldara opna útibú í Reykjanesbæ og því vill Umboðsmaður skuldara halda kynningarfund á Suðurnesjum til að kynna starfsemi sína.
 
Svanborg Sigmarsdóttir, sviðsstjóri kynningasviðs hjá umboðsmanni skuldara mun fjalla um helstu úrræði embættisins fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum, auk þess að kynna nokkur góð ráð vegna fjármála heimilisins.
 
Hlutverk embættisins er að veita heimilum í greiðsluerfiðleikum aðstoð, bæta stöðu þeirra og auðvelda einstaklingum að koma á jafnvægi á milli greiðslubyrði og greiðslugetu. Stærstu verkefni umboðsmanns skuldara eru annars vegar að veita aðstoð við greiðsluaðlögun, fyrir þá sem ekki munu geta staðið undir skuldbindingum sínum til framtíðar. Hins vegar er það að veita ráðgjöf og vísa veginn úr skuldavanda.

Umboðsmaður skuldara skal gæta hagsmuna skuldara, meðal annars með því að:
Veita þeim sem eiga í greiðsluerfiðleikum ókeypis fjármálaráðgjöf þar sem greiðslugeta er metin
Í kjölfar ráðgjafar getur umboðsmaður skuldara haft milligöngu um samskipti og samninga við kröfuhafa með hagsmuni skuldara að leiðarljósi
Aðstoða þá sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum við að gera samninga um greiðsluaðlögun
Veita ráðgjöf og fræðslu um fjármál heimilanna
Útbúa framfærsluviðmið og uppfæra það reglulega
Taka við erindum og ábendingum um ágalla á lánastarfsemi og koma til viðeigandi eftirlitsstjórnvalds

Fundurinn verður haldinn í Virkjun, Flugvallabraut 740. Ásbrú.