Lán til Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar

Frá skrúðgarði
Frá skrúðgarði

Reykjanesbær hefur gengið frá láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga að upphæð 193 milljónir kr. Lánið er til 14 ára og tekið til að endurfjármagna afborganir á lánum bæjarins í október 2010 hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Jafnframt hefur Reykjaneshöfn fengið samþykkt lán frá Lánasjóðnum fyrir 48 milljónir kr. Lánið er til 14 ára og tekið til að endurfjármagna afborganir á lánum hafnarinnar í nóvember 2010 hjá Lánasjóði sveitarfélaga.