Leiðsögn um Lög unga fólksins

Lög unga fólksins
Lög unga fólksins

Sunnudaginn 17. febrúar kl. 15:00 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna Lög unga fólksins sem opnuð var í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum í janúarlok. Það er Sigrún Sandra Ólafsdóttir, annar tveggja sýningarstjóranna sem tekur á móti gestum en hún rak um tíma Gallerí Ágúst. Hinn sýningarstjórinn er Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur.

Á sýningunni er að finna ný verk, málverk, skúlptúra og innsetningar,  eftir sex unga myndlistarmenn, Davíð Örn Halldórsson, Guðmund Thoroddsen, Jóhönnu Kristbjörgu Sigurðardóttur, Mörtu Maríu Jónsdóttur, Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur og Ragnar Jónasson. Öll eru þau fædd á árunum 1974 til 1982 og eiga að baki bæði einkasýningar og samsýningar heima og erlendis.

Heiti sýningarinnar er tvírætt, vísar bæði  til áhuga listamannanna á dægurtónlist og dægurmenningu almennt og hins „lagskipta málverks“, bæði í tæknilegu og menningarlegu tilliti, enda eru verk þeirra samsett úr mörgum lögum nútíma sjónmenningar. Þetta eru verk máluð á striga, tréplötur, viðarbúta og aðskotahluti, höggin í rótarhnyðjur, hlaðin úr keramíkvösum, að ógleymdum verkum eftir Davíð Örn og Ingunni Fjólu, sem gerð eru sérstaklega fyrir sýningarrýmið.

Í sýningarskránni segir Aðalsteinn Ingólfsson: „Nú er engu líkara en við séum stödd í miðju endurskoðunarferli; kannski er það tímans tákn. Með örfáum undantekningum eru listamennirnir ekki uppteknir af því að fá beina útrás fyrir sterkar tilfinningar, villt ímyndunarafl og húmor, heldur leita þeir leiða til að koma á framfæri því sem þeim liggur á hjarta með hlutlægari hætti en áður, ekki síst með því að sölsa undir sig ýmiss viðmið eldri málaralistar.“

Sýningin Lög unga fólksins stendur til  10. mars.  Hún er opin alla virka daga frá kl. 12.00-17.00 og um helgar frá kl. 13.00-17.00. Ókeypis aðgangur.