Leiðsögn um sýningu Óla G.

 

Þegar sýning á 23 nýjum verkum Óla G, Augastaðir, var opnuð þann 15. janúar sl. óraði engan fyrir því að einungis örfáum dögum síðar yrði listamaðurinn allur og endi bundinn á ævintýrið sem virtist komið á svo gott skrið. Málverkin „uppfull af sterkum tilfinningum, bjartsýni og leikgleði" og Óli G. lék á als oddi við opnunina og lýsti yfir sérstakri ánægju með hvernig til hafði tekist. Nú líður brátt að lokum þessarar síðustu sýningar Óla G. Til að veita nánari innsýn í líf og list Óla G. mun Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og sýningarstjóri leiða gesti um sýninguna, laugardaginn 19. febrúar kl. 14.00.
Sýningin stendur til 27. febrúar í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum, Duusgötu 2-8 og er opin frá kl. 12.00 - 17.00 virka daga og 13.00 - 17.00 um helgar og aðgangur er ókeypis.