- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Í tilefni dags leikskólans ákvað starfsfólk á heilsuleikskólanum Skógarási að bjóða foreldrum í vinnusmiðju og búa til leikföng úr endurvinnanlegum efnivið.
Fjölmargir foreldrar þáðu boðið. Katrín Lilja Hraunfjörð aðstoðarskólastjóri segir ánægjulegt að svo marga foreldrar sáu sér fært að mæta og upplifa hversu hugmyndríkir þeir væru. „Afraksturinn var meðal annars bílar, dúkkur, dúkkurúm og flugvél. Það skapaðist mjög gott og skemmtilegt andrúmsloft þar sem foreldrar voru að hjálpast að við leikfangagerðina.“
Að sögn Katrínar Lilju var viðburðurinn einnig hluti af ECO TWEET sem er Erasmus+ verkefni með þátttöku skóla í Eistlandi, Tyrklandi, Grikklandi, Svíþjóð, Noregi, auk heilsuleikskólans Skógaráss.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös