Leikhópurinn Lotta sýnir Gilitrutt

Gilitrutt í uppfærslu Lottu.
Gilitrutt í uppfærslu Lottu.

Leikhópurinn Lotta sýnir Gilitrutt glænýtt íslenskt leikrit um tröllskessuna Gilitrutt í
Skrúðgarðinum við ytri-Njarðvíkurkirkju 27. jún, fim, 18:00. Þetta er sjöunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Frumsýnt var í Elliðaárdalnum í Reykjavík miðvikudaginn 22. maí,  en í framhaldinu mun hópurinn ferðast með sýninguna og heimsækja yfir 50 staði víðs vegar um landið.

Leikgerðina um Gilitrutt gerði Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er þriðja leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006. Ný tónlist hefur einnig verið samin fyrir verkið. Tónlist sömdu: Björn Thorarensen, Gunnar Ben og systkinin Helga Ragnarsdóttir og Baldur Ragnarsson en hann samdi einnig alla lagatexta.

Gilitrutt þekkja flestir en auk hennar eru ævintýrin um Búkollu og Geiturnar Þrjár  fléttuð inn í söguþráðinn. Alls eru sex leikarar í sýningunni sem skipta á milli sín 11 hlutverkum. Þá er flutt lifandi tónlist, söngur og dans og því nóg um að vera. Herlegheitunum er síðan leikstýrt af Ágústu Skúladóttur.

Miðaverð á sýninguna er 1.500 krónur og ekki þarf að panta miða fyrirfram heldur er alveg nóg að mæta bara á staðinn. Gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu. Öllum þykir jú gaman að eiga mynd af sér með uppáhalds vini sínum úr Ævintýraskóginum.

Nánari upplýsingar um sýninguna má finna á www.leikhopurinnlotta.is og í síma 770-0403