Innritun í leikskóla gengur vel

Innritun barna í leikskóla Reykjanesbæjar gengur vel og er nú komin vel á veg. Unnið er að því að ljúka innritun barna sem fædd eru árið 2024.

Næst verður skoðað í hvaða leikskólum eru laus pláss fyrir börn sem fædd eru á fyrri hluta árs 2025. Foreldrar þeirra barna mega því búast við að fá boð um leikskólapláss sent í apríl.

Aðlögun hefst að jafnaði í ágúst að loknu sumarfríi. Nánari upplýsingar um upphaf leikskólagöngu veitir leikskólastjóri viðkomandi leikskóla.

Við hlökkum til að taka á móti nýjum börnum og fjölskyldum þeirra í leikskóla Reykjanesbæjar í haust.