Leikskólarnir okkar vinsælir til heimsókna

Hér má sjá mynd af leikskólabörnum í spjaldtölvum.
Hér má sjá mynd af leikskólabörnum í spjaldtölvum.

Leikskólarnir  í Reykjanesbæ hafa fengið mikið af heimsóknum leikskólakennara af höfuðborgarsvæðinu og víðar af landinu, sem vilja skoða hið metnaðarfulla og fjölbreytta nám sem fram fer í leikskólum Reykjanesbæjar.

Á dögunum vildi svo til að leikskólinn Vesturberg fékk tvær heimsóknir sama daginn, frá leikskólunum Furuskógum úr Reykjavík og Vallarseli frá Akranesi . Börnin í Vesturbergi létu það þó ekki trufla sig við leik og nám, hvorki prinsessur né aðrir.