- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Leikskólinn að Skógarbraut 932 á Ásbrú mun heita Skógarás. Þetta var tilkynnt á kynningarfundi í heilsuleikskólanum Háaleiti sem fram fór á miðvikudag.
Valið á nafninu fór þannig fram að foreldrum,starfsmönnum og börnum gafst kostur á að koma með tillögur. Það var síðan bæjarráð og kjörnir fulltrúar í fræðsluráði sem kusu um nafn og niðurstaðan var Skógarás.
Heilsuleikskólinn Háaleiti verður fluttur síðar á árinu að Skógarbraut 932 og fær um leið nýtt nafn. Hann mun þá heita heilsuleikskólinn Skógarás sem skýrskotar bæði til götunnar sem hann stendur við og hverfisins, Ásbrúar.

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)