- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Leikskólinn Holt hefur hlotið formlega viðurkenningu sem UNESCO skóli og er þar með orðinn hluti af alþjóðlegu skólaneti Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Viðurkenningin er mikilvæg staðfesting á því öfluga starfi sem unnið hefur verið innan leikskólans á sviði sjálfbærni, umhverfismenntar og alþjóðlegrar ábyrgðar.
UNESCO skólar vinna að því að efla frið, mannréttindi, lýðræði, sjálfbæra þróun og menningarlegan fjölbreytileika. Viðurkenningin fellur vel að áherslum Holts þar sem markvisst hefur verið unnið að því að styrkja börn sem virka, ábyrgða og meðvitaða þátttakendur í samfélaginu.
"Sjálfbærni er rauður þráður í starfi okkar og birtist í daglegum samskiptum, umgengni við náttúruna og þeirri ábyrgð sem við viljum efla hjá börnum gagnvart sjálfum sér, öðrum og umhverfinu," segir Viktoría Sigurjónsdóttir, leikskólastjóri Holts.
Leikskólinn starfar í anda Reggio Emilia þar sem litið er á barnið sem hæfan, forvitinn og skapandi einstakling. Áhersla er lögð á nám í gegnum leik, rannsóknir, sköpun og samskipti, þar sem hugmyndir og áhugi barna fá að hafa áhrif á daglegt starf.
„Við viljum að börn upplifi að þau geti haft áhrif, að hugmyndir þeirra skipti máli og að þau séu mikilvægur hluti af samfélagi sínu“ segir Viktoría.
Leikskólinn Holt er stoltur af þessari viðurkenningu og mun áfram rækta með börnum virðingu fyrir náttúrunni, umhverfinu og hvert öðru. Því litlu skrefin sem tekin eru í dag geta haft stór áhrif á morgundaginn.
Reykjanesbær óskar leikskólanum Holt hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna og hlakkar til að fylgjast áfram með því frábæra starfi sem á sér stað á leikskólanum!

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)