Lið Reykjanesbæjar og Fjallabyggðar eigast við í Útsvari í kvöld

Útsvarsliðið ásamt Árna Sigfússyni bæjarstjóra
Útsvarsliðið ásamt Árna Sigfússyni bæjarstjóra

Hinn æsispennandi spurningaþáttur Útsvar heldur áfram í kvöld en þá keppir lið Reykjanesbæjar við lið Fjallabyggðar. 

Lið Reykjanesbæjar skipa sem fyrr þau Baldur Guðmundsson, Theodór Kjartansson og Hulda G. Geirsdóttir og er óhætt að lofa góðri skemmtun.

Á myndinni má sjá lið Reykjanesbæjar ásamt formanni aðdáendaklúbbsins.

Ekki missa af Útsvari strax að loknu Kastljósi.