- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Lið Reykjanesbæjar og Kópavogs mæta í síðustu viðureign undanúrslitakeppninnar í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaga á RUV. Lið Reykjanesbæjar skipa Kristján Jóhannsson, Valgerður Björk Pálsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson. Liðið á góða möguleika á því að komast í úrslitaviðureignina þann 25. janúar.
Liðið hefur staðið sig vel í vetur og unnið tvær viðureignir, á móti Hálendinu og Ísafjarðarbæ. Bæjarbúar eru hvattir til að standa vel við bakið á liðinu og hvetja það til dáða. Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með liðinu í sjónvarpssal þurfa að vera mættir í Útvarpshúsið Efstaleiti eigi síðar en klukkan 19:10.
Áfram Reykjanesbær !
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)