Lífshlaupið hefst 1. febrúar!

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) sem hvetur fólk á öllum aldri til að hreyfa sig daglega og styrkja þannig heilsu og vellíðan.

Reykjanesbær hvetur skóla og vinnustaði í bænum til að taka þátt í Lífshlaupinu og nýta tækifærið til að gera hreyfingu að hluta af daglegu lífi. Hægt er að skrá alla hreyfingu sem nær samtals að minnsta kosti 30 mínútum á dag hjá fullorðnum og 60 mínútum á dag hjá börnum og unglingum. Tímanum má einnig skipta niður yfir daginn, til dæmis í nokkur styttri tímabil.

Lífshlaupið er skemmtilegur vettvangur til að efla samstöðu, auka hreyfingu og hvetja til heilbrigðs lífsstíls bæði í skóla og á vinnustöðum.

Nánari upplýsingar og skráning má finna á heimasíðu Lífshlaupsins.

Þín heilsa – Þín skemmtun