- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Dagurinn 6. febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagurinn er samstarfsverkefni FL, FSL, Sambands íslenskra sveitarfélaga, mennta - og menningarmálaráðuneytisins og Heimilis og skóla . Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann,vekja umræðu um hlutverk leikskólans og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Leikskólar hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti og í dag var engin undantekning.
Leikskólar Reykjanesbæjar létu ekki sitt eftir liggja og á meðfylgjandi mynd má sjá börn af leikskólanum Holti í ljósagöngu sem þau fóru í af tilefni dagsins. Öll börn voru með ljós og var gengið að Akurskóla og sungið fyrir grunnskólabörnin. Þetta var afar skemmtileg ævintýraferð í roki og skemmtilegu veðri. Tilgangur ljóssins var að varpa ljósi á leikskólabarnið og mikilvægi leikskólans í samfélaginu.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)