- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Alls munu allt að 110 liðsmenn Bandaríska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og kemur til landsins með fimm F16 orrustuþotur. Greint var frá á vef Landhelgisgæslunnar
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 29. til 31. júlí.
Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok ágúst.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)