- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Þriðjudaginn 10. mars sl. fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjanesbæ fram í Stapa í 29. sinn. Það eru nemendur í 7. bekk úr grunnskólum Reykjanesbæjar sem taka þátt í keppninni ár hvert. Áður höfðu skólarnir haldið forkeppni og valið tvo fulltrúa hver. Fjórtán keppendur tóku því þátt að þessu sinni, tveir frá hverjum skóla. Stóra upplestrarkeppnin hefst formlega á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember ár hvert en það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Fram að lokakeppni leggja nemendur og kennarar sérstaka áherslu á vandaðan upplestur og framsögn.
Það er óhætt að segja að keppendur hafi staðið sig með prýði og verið sjálfum sér og sínum skóla til mikils sóma. Dómnefndin var ekki öfundsverð af hlutskipti sínu að velja í verðlaunasæti enda hrósaði Guðbjörg Sveinsdóttir formaður dómnefndar keppendum í hástert og benti á það að allir væru í raun og veru sigurvegarar þar sem hver og einn keppandi hefði sigrað í sínum skóla. Að sama skapi hvatti hún keppendur til þess að halda áfram að leggja rækt við þennan þátt móðurmálsins, vandaðan upplestur og framburð.
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs Reykjanesbæjar tók í sama streng og lagði áherslu á að hvert og eitt þeirra væri sigurvegari í þeim skilningi að keppendur hefðu tekið miklum framförum frá því þeir hófu þessa vegferð í nóvember. Helgi þakkaði Önnu Huldu Einarsdóttur kennsluráðgjafa á skrifstofu menntasviðs og Haraldi Axel Einarssyni grunnskólafulltrúa fyrir að hafa umsjón með Stóru upplestrarkeppninni og veg og vanda að undirbúningi þessarar glæsilegu hátíðar.
Ingibjörg Einarsdóttir, formaður Radda samtaka um vandaðan upplestur og framsögn ávarpaði samkomuna en hún er ein þeirra sem ýtti þessu verkefni, Stóru upplestrarkeppninni, úr vör fyrir 30 árum. Ingibjörg lýsti yfir ánægju sinni með stjórnendur, kennara og foreldra í Reykjanesbæ vegna þess hve vel þeir héldu utan um og sinntu þessu verkefni. Hún lagði jafnframt áherslu á að helsta markmið verkefnisins væri að fá alla nemendur til þátttöku og gefa þeim tækifæri til að æfa upplestur sjálfum sér og öðrum til ánægju. Að lokum hvatti hún kennara til þess að halda áfram að sinna þessum þætti móðurmálsins.
Sigurvegarar keppninnar í ár voru eftirfarandi:
1. sæti var Birkir Frosti Kjartansson, Holtaskóli
2. sæti var Halla Björk Guðjónsdóttir, Myllubakkaskóli
3. sæti var Hilmar Geir Geirsson, Holtaskóli

Allir keppendurnir fengu bókina Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson og rós í viðurkenningarskyni en fyrstu þrjú sætin fengu einnig peningaverðlaun í boði Íslandsbanka.
Ómissandi þáttur þessarar hátíðlegu stundar er tónlistarflutningur nemenda Tónlistarskóla Reykjanesbæjar en flutt voru þrjú tónlistaratriði á hátíðinni. Í upphafi léku þær Mary Lowvi Anne Apas og Ólafía Arndís Björnsdóttir Over the Rainbow e. Harold Arien á klarinett en Geirþrúður F. Bogadóttir lék undir á píanó. Þá lék Frida Rós Linnér og Lovísa Mía B. Stefánsdóttir Vorkvöld í Reykjavík e. Evert Tube á þverflautu og Geirþrúður F. Bogadóttir lék undir á píanó að lokum lék Guðrún Heiða Jónsdóttir Musetta e. Johann Sebastian Back á píanó.
Magni Sær Gunnarsson sigurvegari í Stóru upplestrarkeppninni frá fyrra ári kynnti skáld hátíðarinnar, Ólaf Pál Jónsson. Kristjana Nótt Guðrúnadóttir einnig verðlaunahafi frá því í fyrra, kynnti ljóðskáld hátíðarinna sem voru mörg að þessu sinni. Þá las Natalia Dziondziakowska nemandi í Myllubakkaskóla ljóð á móðurmáli sínu, pólsku. Að lokum afhenti Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs bókagjafir.
Ástæða er til að þakka öllum upplesurum, tónlistarflytjendum, kennurum og foreldrum fyrir frábæran undirbúning sem skilaði sér í vönduðum og góðum flutningi fyrir fullum sal af áhorfendum.
Keppendur sem tóku þátt:
Ásgeir Marinó Gylfason, Háaleitisskóli
Berglind Elva Rafnsdóttir, Njarðvíkurskóli
Birkir Frosti Kjartansson, Holtaskóli
Brynja Lív á Svöð Siriardóttir, Háaleitisskóli
Dísella Maren Bjarnadóttir, Heiðarskóli
Heiða Lind Hermannsdóttir, Stapaskóli
Heiðdís Klara Hjartardóttir, Akurskóli
Halla Björk Guðjónsdóttir, Myllubakkaskóli
Hilmar Geir Geirsson, Holtaskóli
Hrafnhildur Embla Ægisdóttir, Njarðvíkurskóli
Hugrún Helgadóttir, Myllubakkaskóli
Íris Freyja Atladóttir, Akurskóli
María Dís Jónsdóttir, Stapaskóli
Matthea Maísól Almarsdóttir, Heiðarskóli
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)