Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjanesbæ

Keppendur Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjanesbæ
Keppendur Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjanesbæ

Miðvikudaginn 3. mars fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjanesbæ fram í Bergi, Hljómahöll í 24. sinn. Það eru nemendur í 7. bekk úr grunnskólum Reykjanesbæjar sem taka þátt í keppninni ár hvert. Áður höfðu skólarnir haldið forkeppni og valið tvo fulltrúa hver. Fjórtán keppendur tóku því þátt að þessu sinni, tveir frá hverjum skóla.

  • Agnes Jóna Pálmadóttir, Háaleitisskóla
  • Alma Rós Magnúsdóttir, Heiðarskóla
  • Bryndís Björk Guðjónsdóttir, Myllubakkaskóla
  • Brynja Arnarsdóttir, Heiðarskóla
  • Guðný Kristín Þrastardóttir, Myllubakkaskóla
  • Haukur Freyr Eyþórsson, Akurskóla
  • Júlíana Benediktsdóttir, Stapaskóla
  • Katrín Alda Ingadóttir, Stapaskóla
  • Kristín Björk Guðjónsdóttir, Njarðvíkurskóla
  • Nikolai Leo Jónsson, Akurskóla
  • Patrik Vyplel, Háaleitisskóla
  • Rúna María Fjeldsted, Holtaskóla
  • Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir, Holtaskóla
  • Viktor Garri Guðnason, Njarðvíkurskóla

Stóra upplestrarkeppnin hefst formlega á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember ár hvert en það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Fram að lokakeppni leggja nemendur og kennarar sérstaka áherslu á vandaðan upplestur og framsögn.

Það er óhætt að segja að keppendur hafi staðið sig með prýði og verið sjálfum sér og sínum skóla til mikils sóma. Dómnefndin var ekki öfundsverð af hlutskipti sínu að velja í verðlaunasæti enda lagði Ingibjörg Einarsdóttir formaður dómnefndar áherslu á það að allir væru í raun og veru sigurvegarar. Að sama skapi hvatti hún keppendur til þess að halda áfram að leggja rækt við þennan þátt móðurmálsins, vandaðan upplestur og framburð.

Ómissandi þáttur þessarar hátíðlegu stundar er tónlistarflutningur nemenda Tónlistarskóla Reykjanesbæjar en flutt voru fjögur tónlistaratriði á hátíðinni. Í upphafi lék Ísak Máni Karlsson Hallelujah e. Leonard Cohen á gítar, Anika Owczarska lék Over the Rainbow á þverflautu. Þá lék Guðbjörg Sofie Ívarsdóttir Sjómannavalsinn á þverflautu. Að lokum fluttu þau Rozalia Mietus og Jakob Piotr Grybos Sónötu nr. 5 eftir Beethoven á fiðlu og píanó. Allir nemendur sem komu fram eru í 7. bekk og komu úr grunnskólum Reykjanesbæjar. Sigurvegarar í stóru upplestrarkeppninni frá fyrra ári þau Alexander Freyr Sigvaldason og Thelma Helgadóttir kynntu skáld hátíðarinnar þau Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Kristján frá Djúpalæk. Þá las Fjóla Osmani, nemandi í Njarðvíkurskóla ljóð á móðurmáli sínu, albönsku. Að lokum flutti Helgi Arnarson sviðsstjóri fræðslusviðs ávarp og afhenti bókagjafir.

Ástæða er til að þakka öllum upplesurum, tónlistarflytjendum og kennurum fyrir frábæran undirbúning og æfingar sem skiluðu sér í vönduðum og góðum flutningi fyrir fullum sal af áhorfendum.

Sigurvegarar keppninnar í ár voru eftirfarandi:

Í 1. sæti var Guðný Kristín Þrastardóttir, Myllubakkaskóla
Í 2. sæti var Kristín Björk Guðjónsdóttir, Njarðvíkurskóla
Í 3. sæti var Rúna María Fjeldsted, Holtaskóla

Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar

Guðný Kristín Þrastardóttir, Kristín Björk Guðjónsdóttir og Rúna María Fjeldsted