Lumar þú á hugmynd fyrir næstu Ljósanótt?

Ertu með hugmynd að viðburði, tónleikum, afþreyingu eða einhverju öðru skemmtilegu á Ljósanótt eða langar bara að taka þátt í umræðum?

Menningarráð Reykjanesbæjar heldur fund um Ljósanótt og framkvæmd hennar árið 2016 í Bíósal Duus Safnahúsa þriðjudaginn 23. febrúar kl. 19:30 og býður alla bæjarbúa velkomna til skrafs og ráðagerða.