Malbiksframkvæmdir 21.-28. júní

Malbiksframkvæmdir munu standa yfir í Reykjanesbæ á næstu vikum, þegar veður leyfir. Frá 21 – 28. júní verða blámerktar götur á meðfylgjandi mynd malbikaðar, með fyrirvara um breytingar. Viðkomandi vegaköflum verður lokað og hjáleiðir merktar. Viðeigandi öryggis- og umferðarmerkingar verða settar upp meðan á framkvæmdum stendur. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.

Gera má ráð fyrir að framkvæmdir í íbúðahverfum standi yfir frá kl. 8:00 til 19:00. Röskun gæti orðið á strætó á einhverjum leiðum vegna framkvæmdanna.

Vegfarendur eru vinsamlegast beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem kunna að skapast af framkvæmdunum.