Málþing Lions um lestrarvanda í Íþróttaakademíunni

Stúlkur í sumarlestri í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Stúlkur í sumarlestri í Bókasafni Reykjanesbæjar.

Helgi Arnarson fræðslustjóri Reykjanesbæjar mun opna málþing Lions um lestrarvanda sem haldið verður í Íþróttaakademíunni laugardaginn 5. nóvember kl. 10:30 til 13:00. Margt fróðlegra erinda verður á dagskrá og er aðgangur ókeypis og öllum heimill. 

Lionshreyfingin á Íslandi hefur um árabil látið sig lestur varða og stendur fyrir árlegum málþingum þar sem einblínt er á lestrarvanda og hvernig hægt sé að bregðast við honum. Dagskrá málþingsins í ár er eftirfarandi:

-Setning: Árni Brynjólfur Hjaltason fjölumdæmisstjóri Lions.
-Opnun: Helgi Arnarson fræðslustjóri Reykjanesbæjar.
-Lestrarátak Lions: Hrund Hjaltadóttir lestrarátaksstjóri Lions.
-Læsi - hvað er það? Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur og formaður Ibby á Íslandi.
-Að skrifa sig til læsis: Sigrún Jóhannsdóttir talmeinafræðingur og framkvæmdastjóri TMF Tölvumiðstöðvar.
-Lestur er ævilöng iðja: Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla.
-Hvað getum við öll gert til að hjálpa? Fyrirspurnir og umæður.
-Slit: Árni Brynjólfur Hjaltason fjölumdæmisstjóri Lions

Fundarstjóri er Jórunn J. Guðmundsdóttir lestrarátaksfulltrúi 109A.