- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Málþing um stöðu innflytjenda var haldið í Stapa föstudaginn 14. nóvember sl. Málþing þetta var haldið af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og var ætlað sveitarstjórnarmönnum og öðrum stjórnendum í sveitarfélögum, svo og starfsmönnum sem hafa umsjón með málefnum innflytjenda.
Í boði voru fjölbreytt erindi um málefni og stöðu innflytjenda á Íslandi. Tvö mjög áhugaverð erindi voru í höndum tveggja bæjarbúa Reykjanesbæjar, þeirra Heru Ó Einarsdóttur og Angelu Marina Barbedo Amaro. Erindi Heru fjallaði um það hvernig við getum nýtt okkur reynslu norðurlandaþjóða í málefnum innflytjenda og fjallaði erindi Angelu um sjónarhorn innflytjandans og hvernig það sé að vera íbúi í Reykjanesbæ.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)