- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Hanna María Jónsdóttir hefur verið ráðin nýr Mannauðs- og gæðastjóri Reykjanesbæjar. Hún hefur víðtæka reynslu í mannauðsmálum og breytingastjórnun.
Hanna María er viðskiptafræðingur að mennt með marktæka reynslu á sviði mannauðsmála og breytingastjórnunar. BS ritgerð hennar frá Háskólanum að Bifröst fjallaði meðal annars um þetta efni og bar yfirskriftina Mannauðsstjórnun; hvað hefur áhrif á rekstrarafkomu fyrirtækja.
Hanna María hefur starfað við stjórnunarstörf sem tengjast mannauði, samskiptum, fjármálum og rekstri hjá Reiknistofu bankanna, Teris hf og Spron en starfar nú hjá Heilsumiðstöðinni ehf. við innleiðingu breytinga, endurskipulagningu ferla, þjálfun starfsfólks og eftirfylgni með nýjum stöðlum.
Hanna María mun hefja störf á haustmánuðum.
Tjarnargötu 12 | 230 Reykjanesbæ | Sími: 421 6700
reykjanesbaer@reykjanesbaer.is | Kt. 470794-2169
Opnunartími: kl. 9:00 – 16:00 mán.-fim.
og kl. 9:00-15:00 fös