Saman með ljós í hjarta á Ljósanótt

Ljósanótt, fjölskyldu- og menningarhátíð Reykjanesbæjar, fer fram um næstu helgi. Þá koma íbúar og gestir saman eftir ævintýri sumarsins og stilla saman strengi inn í haustið.

„Með ljós í hjarta“ er leiðarstef hátíðarinnar. Í því felst að láta ljós sitt skína í sköpun og samveru, sýna gleði, virðingu, umhyggju og jákvæðni. Ljósanótt er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem lögð er áhersla á að allir njóti góðra stunda saman og fari öruggir heim að loknum hátíðarhöldum hvers dags.

Reykjanesbær hvetur alla til að standa saman að því að skapa öruggt og hlýlegt samfélag á Ljósanótt – með ljós í hjarta.