- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Í morgun lagðist fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins að bryggju í Reykjanesbæ þegar MV Discoverer kom til hafnar. Með komu skipsins hefst metár fyrir Reykjaneshöfn en aldrei áður hafa jafn mörg skemmtiferðaskip verið bókuð til bæjarins á einu sumri.
Alls er gert ráð fyrir sex skipakomum á tímabilinu ágúst til september. Í upphafi árs voru fjórar komur staðfestar, en þeim hefur síðan fjölgað í sex sem endurspeglar þann meðbyr sem Reykjanesbær nýtur sem áfangastaður fyrir skemmtiferðaskip.
Árangurinn er afrakstur markvissrar uppbyggingar og markaðssetningar sem staðið hefur yfir undanfarin ár. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að höfða til leiðangursskipa og smærri skemmtiferðaskipa, sem henta vel þeirri þjónustu og upplifun sem Reykjanesbær og Reykjanesskagi hafa upp á að bjóða.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá þessa markvissu vinnu skila árangri. Komur skemmtiferðaskipa skapa aukin tækifæri fyrir ferðaþjónustu, verslun og þjónustufyrirtæki í Reykjanesbæ og auðga mannlífið hér í bæ. Jafnframt eru þær mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu hafnarinnar og fjölbreyttari starfsemi hennar. Við viljum halda áfram að byggja upp þessa grein í góðu samstarfi við höfnina og ferðaþjónustuna á svæðinu,“ segir Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Áætlaðar skipakomur í sumar eru:
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)