Mikil ánægja foreldra með skólastarf í Reykjanesbæ

Úr fjölskyldusmiðju í listasal.
Úr fjölskyldusmiðju í listasal.

Ánægja foreldra með skólastarf í Reykjanesbæ er mikil, að sögn Gylfa Jóns Gylfasonar fræðslustjóra, og greinilegt að íbúum hugnast vel þær áherslur sem lagðar hafa verið í skólamálum.
Skólavogin er samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaga. Skólavogin skilar nú m.a. árlegum samanburði á viðhorfi foreldra til grunnskólastarfs í 69 grunnskólum í yfir 30 sveitarfélögum, Í könnun fyrir skólaárið 2012-2013 reyndist Reykjanesbær vera í efstu sætum í mati foreldra með þjónustuþætti grunnskólanna.

Niðurstaða mælinga skólavogarinnar fyrir starfsárið 2012-2013 sýnir að Reykjanesbær er í 6. sæti af sveitarfélögunum 30 með ánægju foreldra með samskipti starfsfólks við nemendur. Þá er bærinn einnig í 6. sæti sveitarfélaganna varðandi ánægju foreldra með aðstöðu í grunnskólunum.

Reykjanesbær er í 4. sæti hvað varðar áhrif foreldra á ákvarðanir varðandi nemendur og þátttöku foreldra í gerð námsáætlunar, í 2. sæti með mat foreldra á hraðri úrvinnslu skólans á eineltismálum og 3. sæti með mat foreldra á hæfilegum aga í skólanum.

Útgjöld til skólamála 2014 nema um 4,5 milljörðum kr. eða um 52% af heildarútgjöldum bæjarsjóðs Reykjanesbæjar. Þau eru langstærsti þjónustuliður bæjarfélagsins.