Mikilvægt að flýta bólusetningu starfsfólks flugfélaga

Bókun lögð fram á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 2. mars 2021.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar tekur undir framkomnar óskir flugþjónustufyrirtækja um að flýta bólusetningu flugliða og annars starfsfólks flugfélaga sem á í samskiptum við flugfarþega og skorar á stjórnvöld að breyta forgangsröðun bólusetningar til þess að svo megi verða.

Yfir 40% af efnahagsumsvifum á svæðinu má beint eða óbeint rekja til alþjóðaflugvallarins í Keflavík. Til að auka líkur á skjótari viðsnúningi ferðaþjónustunnar og starfseminnar á Keflavíkurflugvelli er mikilvægt að gera allt sem hægt er til að draga úr neikvæðum áhrifum Covid19.

Stór liður í því er að flýta bólusetningu framlínufólks í flugi og flugþjónustu svo það sé betur búið undir að taka á móti og þjónusta fólk sem vill ferðast til Íslands í vor og sumar.

Atvinnuleysi á Suðurnesjum er það langmesta á Íslandi og mikilvægt að koma hjólum atvinnulífsins í gang að nýju.

Skv. nýjum könnunum kemur fram að val á áfangastað mun fyrst og fremst ákvarðast af því hvernig landið tekur á Covid og bólusetningu gagnvart ferðamönnum. Þá leið eru m.a. Írar að fara til þess að geta markaðssett sinn flugvöll sem veirufrían flugvöll. Því skiptir bólusetning framlínufólks í ferðaþjónustu miklu máli en ekki síður til þess að koma í veg fyrir að smit berist til landsins.

Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D), Baldur Þ. Guðmundsson (D), Díana Hilmarsdóttir (B), Friðjón Einarsson (S), Guðbrandur Einarsson (Y), Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), Jóhann Friðrik Friðriksson (B), Margrét A. Sanders (D), Margrét Þórarinsdóttir (M) og Styrmir Gauti Fjeldsted (S).