- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Nemendur Myllubakkaskóla sækja Dani heim
Mánudaginn 8. október héldu 33 nemendur 10. bekkjar og 3 kennarar til Danmerkur.
Ferðinni er heitið til Aarup á Fjóni þar sem heimsóttur verður skóli sem Myllubakkaskóli er í samstarfi við. Nemendur munu gista á heimilum danskra nemenda og fylgja þeim í skóla og aðra viðburði alla vikuna. Bæði verða hefðbundnir skóladagar og óhefðbundnir. Nemendur munu t.d. heimsækja H. C. Andersen Hus í Odense og einnig skoða listasafn þar.
Ýmis verkefni hafa verið unnin í aðdraganda ferðarinnar og eru nemendur í 5 manna vinnuhópum sem 2 Íslendingar og 3 Danir skipa. Þau hafa m.a. unnið að kynningu á fermingarsiðum í báðum löndum og munu kynna sín verkefni þegar út er komið. Á heimleiðinni verður stoppað í Kaupmannahöfn og þar verða Tívolí, Strikið og margir aðrir markverðir staðir skoðaðir.
Verkefnið og samskiptin við dönsku krakkana halda svo áfram í allan vetur og enda á að Danirnir koma hingað til okkar í maí nk.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)