- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Samkvæmt niðurstöðum úr Skólavoginni, mælitæki sem notað er til að afla og meta ýmsar upplýsingar um skólastarf, hafa nemendur í Reykjanesbæ meiri áhuga á stærðfræði og náttúrufræði en gengur og gerist annars staðar á landinu.
Gylfi Jón Gylfason fræðslustjóri Reykjanesbæjar segir þessar niðurstöður afar ánægjulegar og telur að mikinn áhuga nemenda á raungreinum megi rekja til þess að miklar framfarir hafa orðið í stærðfræði í bæjarfélaginu undanfarin ár. Almennt hafi nemendur áhuga á því sem þeir eru góðir í og sinni því vel. Því sé eðlilegt að nemendur hafi mikinn áhuga á raungreinum.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)