- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Ljóst er að nýtt þátttökumet verður slegið enn eina ferðina því alls hafa 190 keppnislið verið skráð til leiks frá 24 félögum á Nettómótinu í körfubolta sem fram fer um næstu helgi.
Til samanburðar má geta þess að 148 keppnislið léku á mótinu í fyrra þannig að aukningin er heil 25%. Samkvæmt þessu eru keppendur um 1300 talsins.
Félögin sem taka þátt í ár eru eftirfarandi:
Ármann, Breiðablik, Fjölnir, FSu, Grindavík, Haukar, Hörður, Höttur, ÍA, ÍR, Keflavík, KFÍ, Kormákur, KR, Njarðvík, Sindri, Skallagrímur, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll, UMF Hekla, Valur, Þór Akureyri, og Þór Þorlákshöfn.
Mynd: Listaverkið Hlutverk við Fitjarnar hefur nú fengið nýtt hlutverk en það er að vekja athygli á körfuboltamóti krakka 11 ára og yngri.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)