Njarðvíkurskóli hlýtur grænfánann í annað sinn

Frá afhendingu grænfána í Njarðvíkurskóla.
Frá afhendingu grænfána í Njarðvíkurskóla.

Njarðvíkurskóli hlaut grænfánann, umhverfismerki vistvænna skóla, í annað sinn í dag og var fáninn afhentur við hátíðlega athöfn í íþróttamiðstöð Njarðvíkur.

Góðir gestir fögnuðu þessum áfanga með Njarðvíkurskóla s.s. Lárus Vilhjálmsson framkvæmdarstjóri Landverndar, Orri Páll verkefnisstjóri Grænfánans, Guðbjörg Sveinsdóttir fulltrúi fræðslustjóra og Guðlaugur Sigurjónsson framkvæmdarstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanesbæjar.

Njarðvíkurskóli vinnur samkvæmt umhverfisstefnu Reykjanesbæjar en meginmarkmið með umhverfismennt skólans er að auka þekkingu og virðingu nemenda fyrir umhverfi sínu og skapa jákvætt viðhorf  til umhverfismála. Með aukinni þekkingu á umhverfismálum og jákvæðu viðhorfi nemenda og starfsmanna er auðveldara að fá þau til að flokka sorp og ganga betur um náttúruna.

Nemendur og starfsfólk skólans hafa tekið sig á í umhverfismálum síðustu ár. Meðal verkefna skólans hefur verið flokkun á pappír og betri nýting hans t.d. að nota báðar hliðar á blöðum, renta einungis það sem er nauðsynlegt og stilla ljósritun í hóf. Rafræn samskipti eru notuð sé þess kostur og umhverfi skólans er haldið hreinlegu með þrifum á skólalóð. Yngri nemendur, í 1.-6. bekk, koma ekki með fernur í skólann og drekka mjólk eða vatn í nestistímum.

Haustið 2007 fékk Njarðvíkurskóli þá viðurkenningu Landverndar að fá að flagga Grænfánanum en Grænfáninn er umhverfismerki vistvænna skóla. Á tveggja ára fresti þarf að endurnýja umsókn um fánann og er þá gerð úttekt á umhverfisstefnu skólans og framkvæmd hennar. Nánari upplýsingar um Grænfánaverkefnið er að finna á heimasíðu Landverndar.

Umhverfisteymi nemenda og kennara tóku við fánanum og eftir athöfnina í íþróttahúsi var fánanum flaggað. Skólastjórn bauð síðan öllum gestum, fullorðnum sem nemendum upp á súkkulaðiköku og mjólk sem vakti mikla lukku.