- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Vetrarfrí leik- og grunnskólanna er um helgina og nóg í boði fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ sem vilja nýta dagana til samveru, útivistar og afþreyingar. Hér fyrir neðan getið þið séð opnunartíma og viðburði sem eru á dagskrá á bókasöfnum, söfnum og sundlaugum bæjarins yfir fríið en einnig er til dæmis tilvalið að ganga meðfram strandlengjunni, njóta haustsins og kíkja á Skessuna í hellinum.

Virkir dagar: 06:30–21:30
Helgar: 09:00–18:00
Virkir dagar: 15:00–21:30
Helgar: 09:00–18:30

Á bókasöfnunum verður líf og fjör í vetrarfríinu með fjölskylduvænum viðburðum.
Virkir dagar: 09:00–18:00
Helgar: 10:00–17:00
Virkir dagar: 08:00–18:00
Laugardagur: 10:00–14:00
Vetrarfrísföndur á Aðalsafni – föstudaginn 20. febrúar kl. 13:00–15:00
Skemmtilegur viðburður fyrir fjölskyldur með ung börn til að setjast niður, spjalla og föndra saman falleg vinaarmbönd. Allt efni verður á staðnum.
Bókabíó barna á Aðalsafni - Ronja Ræningjadóttir – sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00
Fjölskyldum er boðið í bókabíó á mynd um hina óviðjafnanlegu Ronju Ræningjadóttur –sýnd með íslensku tali. Öll velkomin og aðgangur ókeypis.

Duus Safnahús, þar sem meðal annars eru Listasafn Reykjanesbæjar og Byggðasafn Reykjanesbæjar, verða opin alla helgina.
Þar geta gestir skoðað fjölbreyttar sýningar og tekið þátt í skapandi listsmiðjum fyrir alla aldurshópa.
Þriðjudagur–sunnudagur: 12:00–17:00
Mánudagur: lokað
Leynilegir íbúar Duus húsa – leiðsögn – laugardaginn 21. október kl. 14:00-15:00

Tilvalin fjölskyldustund í vetrarfríinu þar sem börnin geta hreyft sig, leikið sér og leyst út smá orku. Aðgangseyrir: 1.000 kr. Hver forráðamaður ber ábyrgð á sínu barni/börnum.
Fimmtudagurinn 19. febrúar
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 0–3 ára (salur uppi)
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 4–8 ára
Kl. 11:10–12:10 → Fyrir 9–12 ára
Föstudagurinn 20. febrúar
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 0–3 ára (salur uppi)
Kl. 10:00–11:00 → Fyrir 4–8 ára
Kl. 11:10–12:10 → Fyrir 9–12 ára

Fjörheimar Stapa
Opið fimmtudaginn 19. febrúar kl. 19:00-21:30 - Imposter
Fjörheimar Háaleiti
Fimmtudaginn 19.febrúar - Hópferð á Njarðvík-KR í IceMar höllinni. Mæting er í Fjörheimar Háaleiti klukkan 18:30 og farið er saman á leikinn einnig er í boði að hitta starfsfólk á staðnum.

Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)