Norræn bókmenntavika í Bókasafni Reykjanesbæjar

Veggspjald norrænu bókmenntavikunnar 11. - 17. nóvember 2019.
Veggspjald norrænu bókmenntavikunnar 11. - 17. nóvember 2019.

Mánudaginn 11. nóvember var Norræna bókmenntavikan sett í 23. sinn, þar sem norræn frásagnarlist og sagnaauður eru í öndvegi. Þemað í ár er „Norræn hátíð“ en hátíðir og veislur eru mikilvægir atburðir sem koma á skipulagi í lífinu og hressa upp á það með því að endurtaka sig með jöfnu millibili eða til að marka tímamót í lífi manna. Þess vegna eru hátíðir líka mikilvægar og algengt umfjöllunarefni í bókmenntum.

Meginmarkmið Norrænu bókasafnavikunnar er að lýsa upp svartasta skammdegið með því að tendra ljós og lesa bók.

Í bókasafninu hefur verið sett upp afmælishátíðarborð í Átthagastofu þar sem gestir og gangandi geta skoðað og kannski bragðað af nýjum piparkökum.

Vertu með í boðinu, settu myndirnar þínar inn á Instagram eða á Facebook og merktu þær með #nordisklitt19 #bókasafnreykjanesbæjar