Ný gjaldskrá hefur tekið gildi

Ljósmynd: Stefán Magnússon
Ljósmynd: Stefán Magnússon

Ný gjaldskrá Reykjanesbæjar tók gildi um áramótin og gildir fyrir árið 2026.

Í gjaldskránni felst meðal annars lækkun á álagningarhlutfalli fasteignaskatts af íbúðarhúsnæði. Útsvarshlutfall og gjald fyrir úrgangshirðu haldast óbreytt frá fyrra ári.

Lítilsháttar hækkun verður á flestum gjaldaliðum í takt við almennar vísitöluhækkanir. Flestar hækkanir á þjónustugjöldum eru í kringum 4% og endurspegla almenna kostnaðarþróun í rekstri sveitarfélagsins.

Gjaldskráin nær til fjölbreyttrar þjónustu Reykjanesbæjar og er ætlað að standa undir rekstri, viðhaldi og áframhaldandi uppbyggingu þjónustu við íbúa bæjarins.

Hér má nálgast gjaldskrá Reykjanesbæjar í heild sinni.