Ný krafa um gæðastjórnunarkerfi í byggingariðnaði

Krafa um gæðastjórnunarkerfi byggingariðnaði tekur gildi 1. janúar 2015

Mannvirkjastofnun vekur athygli á að allir sem skrá sig á byggingarleyfisskyld verk sem hönnuðir, hönnunarstjórar, iðnmeistarar eða byggingarstjórar eftir 1. janúar 2015 skulu vera með gæðastjórnunarkerfi sem samþykkt er af stofnuninni.

Krafa um gæðastjórnunarkerfi byggir á  ákvæðum 24. gr., 31. gr. og 32. gr. laga um mannvirki
en samkvæmt 7. tölulið ákvæða til bráðabirgða í lögunum er veittur frestur til 1. janúar 2015
til að uppfylla ákvæðin.

Nánari upplýsingar má m.a. nálgast á vef Mannvirkjastofnunar undir neðangreindri slóð:


http://www.mannvirkjastofnun.is/byggingar/gaedastjornunarkerfi/

Innleiðing gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði - Kynningarfundir

Mannvirkjastofnun og Samtök Iðnaðarins standa fyrir kynningarfundum um innleiðingu
gæðastjórnunarkerfa í byggingariðnaði í september og október.

Fundir verða haldnir á eftirtöldum stöðum:

Egilsstaðir                 22. september kl. 13:00                  Hótel Hérað
Akureyri                    23. september kl. 09:00                  Hótel KEA
Sauðárkrókur             23. september kl. 14:00                  Hótel Mælifell
Ísafjörður                   24. september kl. 13:00                  Hótel Ísafjörður
Borgarnes                  25. september kl. 09:30                  Hótel Borgarnes
Stykkishólmur           25. september kl. 15:00                  Hótel Stykkishólmur
Reykjanesbær          29. september kl. 15:00                Icelandair hótel í Keflavík
Hella                          30. september kl. 15:00                  Árhús, gistihús
Reykjavík                   9. október kl. 15:00                       Grand Hótel - Hvammur

Allir aðilar sem tengjast mannvirkjagerð eru velkomnir