Ný sýning opnar í Suðsuðvestri

Vegferð heitir ný sýning í Suðsuðvestur
Vegferð heitir ný sýning í Suðsuðvestur

Næstkomandi helgi opnar sýning Ástu Ólafsdóttur sem hún nefnir "Vegferð" í Suðsuðvestur.
Sýningin verður opin laugardaginn 20.nóvember frá kl.14:00 til kl.17:00 þó að formleg opnun verði ekki fyrr en daginn eftir þ.e. sunnudaginn 21.
nóvember kl.15:00.

"Vegferð"
Á sýningunni fjallar Ásta um þróun og framhald sem nefnt er á tyllidögum „vegferð".
Vegferð lands og þjóðar, einstaklinga, samtaka, stofnana og svo framvegis. Vegferð getur verið á hvorn veginn sem er; heilladrjúg eða endað með
ósköpum. Engin er vegferðin án samskipta og hreyfiafls. Þegar hlykkur kemur á ferð þessa er vissara að hafa ekki hátt um væntanlega vegferð eins
né neins.

Sýningin tiplar á tánum fram hjá vanabindandi skilyrðum og skimar inn í upplausn veruleikans í leit að glufu til að smeygja sér út um. Í glufum
finnast leiðir sem við getum rakið okkur eftir og þannig haldið áfram inn í glampandi heill og glimrandi hamingju góðs samspils rýmis og tíma.
Suðsuðvestan vindhviða ber okkur inn í þyngdarleysi hins óþekkta þar sem við dveljum um stund.

Ásta Ólafsdóttir er fædd í Reykjavík 1948. Hún stundaði myndlistarnám í Myndlist- og Handíðaskóla Íslands og Jan van Eyck Akademíunni í Hollandi.

Sýningin mun standa til 19 desember. Suðsuðvestur er til húsa á Hafnargötu 22 í Keflavík. Þar er opið um helgar frá kl.14:00.til kl.17:00 og eftir samkomulagi í síma 662 8785.

Nánari upplýsingar má finna á www.sudsudvestur.is