Nýr götusópur tekinn í notkun

Umhverfis- og framkvæmdasvið Reykjanesbæjar tók í gær við nýjum götusóp sem nú verður nýttur til götusópunar í bænum. Með tilkomu hins nýja sóps eykst sjálfstæði bæjarins í þjónustu við íbúa og bætast verulega möguleikar til að bregðast hratt og markvisst við aðstæðum.

Til þessa hefur Reykjanesbær reitt sig á þjónustu verktaka við götusópun. Sú skipan hefur hins vegar þýtt að sveitarfélagið hafði takmarkaða möguleika á að ráða því hvenær götur voru sópaðar. Með nýjum götusóp í eigu bæjarins verður nú hægt að skipuleggja götusópun eftir raunverulegri þörf hverju sinni.

Veturinn í ár hefur einkennst af tíðri hálku, sandburði og breytilegum veðurskilyrðum og því er brýn þörf á reglulegri götusópun til að bæta umhverfi, loftgæði og öryggi vegfarenda. Nú þegar tækið er komið í notkun er stefnt að því að hefja skipulagða götusópun á næstu dögum, eftir því sem veður og aðstæður leyfa.

Með þessari fjárfestingu stígur Reykjanesbær mikilvægt skref í átt að bættri umhirðu bæjarins og aukinni þjónustu við íbúa.