- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Frá og með 1. ágúst 2025 tekur GTS ehf við rekstri almenningssamgangna í Reykjanesbæ. Við þessa breytingu verða engar breytingar á leiðarkerfi eða tímaáætlunum – akstur og þjónusta halda áfram með sama fyrirkomulagi og áður.
Íbúar í Höfnum sem nýta sér pöntunarakstur skulu panta ferðir með sama fyrirvara og hingað til, í síma 894-2115.
GTS ehf verður með aðsetur að Flugvöllum 15.
Ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir má senda á netfangið rnb@gts.is.
Vetraráætlun og aðrar hugsanlegar breytingar verða kynntar sérstaklega síðar. Fylgist með frekari tilkynningum á vef Reykjanesbæjar og samfélagsmiðlum.
Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)