- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Reykjanesbær auglýsti þróunarreit, byggingar- og lóðarréttindi á svæðinu til sölu árið 2021 og samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar tilboð félagsins þann 30. desember sama ár. Reykjanes Investment fyrirhugar að skipuleggja og byggja upp íbúabyggð blandað við verslun og þjónustu. Hún á að taka mið af nærliggjandi starfsemi, framþróun menningar- og ferðaþjónustu á svæðinu auk einstakrar staðsetningar og nálægð við smábátahöfnina í Gróf og menningar- og safnahúsin á svæðinu.
Hugmyndir félagsins, sem má sjá á meðfylgjandi myndum, eru unnar í samvinnu við Nordic - Office of Architecture.




Kl. 09:00 – 15:00 virka daga (mán.-fös.)